Tuesday, March 10, 2009

Maður verður að vera að endurnýja sig stöðugt til þess að staðna ekki. Einnig má ekki gleyma að sinna alltaf öllum þáttum til þess að missa ekki marks á einhverju sviði.

Þríhyrningurinn sem Arnar einkaþjálfarinn minn sýnir mér reglulega er kannski góður reminder. Ég man að vísu ekki alveg hvernig hann er nákvæmlega en snýst í grófum dráttum um að íþróttamaður þurfi að hafa góðan grunn. Mikilvægast og sterkast í botninum er næring, svo koma þol, úthald, styrkur og síðan loksins íþróttin sem maður sérhæfir sig í.

Ég trúi því að ég hafi náð ákveðnum botni í gær og því hef ég frábært tækifæri til þess að spyrna mér vel frá honum.

Ég ætla núna að byrja að borða betur, ætla hætta að borða svona mikið úti, þótt ég fái mér nú í 90% tilfella eitthvað hollt(það er líka svo mikil peningaeyðsla).
Ég er búinn að sinna lyftingum gífurlega vel undanfarið eða allavega sérstaklega hvað sprengikraft varðar. Hnébeyga og Clean.
Það sem vantar er hendur aðeins, mér finnst ég ekki drífa á markið lengur, er hrikalega fyrirsjáanlegur.

Ég verð að sætta mig við það að geta ekki neitt, þannig er staðan bara í augnablikinu, það er líka fínt að vera the underdog, meira að vinna, minna að tapa. Ég fer ómeðvitað að hugsa til þess þegar ég var hryggbrotinn, mátti ekki æfa, horfði eiginlega alltaf á æfingar, eina hreyfingin sem ég fékk var að labba. Ég labbaði allra mína ferða á þessum tíma, með ipodinn minn að hlusta á eitthvað hádramatískt lag eins og eitthva með Bonnie Tyler. Er ekk frá því að ég hafi fundið eld innra með mér, til að koma til baka, sjá og sigra.

Ég þarf að hverfa aftur til þeirra róta.

Monday, March 9, 2009

Svona á sagan ekki að fara, ég skil ekki hvað er í gangi. Tveir mánuðir af kjaftæði. Maður leggur sig fram, leitar af lausnum, æfir aukalega. Er til of mikils ætlast að vilja fá einhverja uppskeru?
Er ekki eitthvað skrítið að æfa eins og rotta en samt bara hæfilega mikið svo að sýra í vöðva eða önnur þreytumerki geri ekki vart við sig en samt er ég orkulaus. Dríf varla á markið, stend í stað, þegar ég ætti að vera að fara áfram.

Núna hef ég klifrað þetta fjall frá því í lok september, það gekk vel í fyrstu og mér gekk sérstaklega vel. En svo fór að halla undan fæti. Því verr sem mínu liði gengur, því verr gengur mér og öfugt.
Ég trúi á verkefnið, ég er þyrstur, en samt er alltaf eitthvað sem klikkar.
Það er hræðilegt að hafa mætt í 7unda leikinn eftir áramót og vera niðurlægður í 5. sinn af 7 leikjum.

Monday, September 29, 2008

Kveðjustund

Kæru lesendur,

ég hef ekki í hyggju að skrifa meira hér inn, ég held að það sé komið gott í bili. Maður er farinn að endurtaka sig mikið og fleira og ég bara nenni því ekki lengur. Það er alger misskilningur ef menn halda að ég sé eitthvað að slaka á í æfingum, ég er grimmari en nokkru sinni fyrr.

Ég bið ykkur öll vel að lifa

Rúnar Kárason

Wednesday, August 27, 2008

Lítið að gerast

Kannski minna af aukaæfingum í gangi en maður hafði hugsað sér og er ég líka aðeins bara að finna rythmann í nýtilkomnum stundaskrám og fleira.

Ég og Magnús Einarsson sem gekk nýverið til liðs við okkur Frammara fórum í smá skot í gær, alltaf gaman að bera saman bækur sínar við fróða menn og Magnús hefur hlotið góða leiðsögn í gegnum tíðina.

Við vorum nú lengi í gang en enduðum hrikalega vel. Byrjuðum á úlnliðsæfingum í svona hálftíma, þar sem maður stendur einfaldlega á endalínu og reynir að hitta í markið. Síðan æfði ég bara eina skottýpu í viðbót og gerði vel. Maggi æfði tvær týpur.

Það var síðan frí á föstudaginn síðasta og fór ég að sjálfsögðu að lyfta þá. Cleana einu sinni í viku, það er nánast jafn mikilvægt og vatn.

Wednesday, August 20, 2008

Ég var kannski aldrei nálægt því að fara með þrátt fyrir að vera einn af fimm örfhentum, eini sem var skilinn eftir. En mér fannst ég vera nálægt því. Mikið andskot sem ég væri til í að vera þarna með þeim.

Tuesday, August 19, 2008

Þriðjudagur

Ég, Einar Ingi og Davíð tókum smá skot í hádeginu, hituðum upp og fórum síðan fljótlega að skjóta, þetta var ekkert rosaprógramm og aðallega að rifja upp og fá aðeins betri tilfinningu. Frá litlu að segja eiginlega.

Vorum frá 1130 til 1300, eða ég var til 13 strákarnir fóru aðeins fyrr. Ég tók aðeins þungan bolta úlnliðsæfingar í lokinn.

Mánudagur

Tók smá extra á mánudagsmorgunn. Byrjaði 11 út í Fram, þar sem ég tók varnarskref fyrir. 40 mínútur í því, ýmist æfingar með teyju milli lappana eða án. Tók einhverja fjórar æfingar með teygjuna á milli.

Fintur frá hliðarlínu í hliðarlínu, 2svar fram og til baka
Varnarskref fram og aftur hliðarlína í hliðarlínu 2svar.

Svo tók ég fjórar keilur og stillti upp í kassa ca. 2 fermetrar og gerði hliðarskref, varnarskref í frímerki. 3 hringir 3svar sinnum.

Endaði síðan á varnarskrefs sprettum, hliðarlínu í hliðarlínu fyrst ein ferð fram og til baka, 30 sek í pásu. 2 ferðir, mínútu í pásu og svo loks 3 ferðir.

Eftir það teygði ég á fótunum og fór síðan niður í silfursport. Þar sem ég lyfti á bicep og tricep frekar basic æfingar og svo cleanaði ég frá gólfi 4 sett 5 3-5 endurtekningar.