Það er fínt að fá smá reality check reglulega. Ég var úti um páskana með 88 liðinu, ég get ekki sagt að stjarna mín hafi skinið(er þetta rétt skrifað?) skært. Áttaði mig bara á því hvað ég á langt í land og hvað ég á mikið inni. Mér finnst ég eiginlega bara mjög slakur. Mér finnst ég eiga að geta verið yfirburðamaður en ég er ekkert nema bara sæmilegur og þessi hroki minn jafnvel ekki að gera nógu góða hluti.
Þannig að best er að rifja upp það sem Sókrates sagði: "ég er örlítið gáfaðari en allir í þorpinu útaf því að ég geri mér grein fyrir því að ég viti ekki neitt, þess vegna þykist ég ekki vita það sem ég ekki veit og veit því meira en hinir"
Æfingaálagið með landsliðinu fór ekki alveg nógu vel í mig, ég fékk í fyrsta sinn í öxlina á ferlinum og er að losna við það núna smátt og smátt. Líkami minn er orðinn eitthvað lúinn finnst mér enda hefur tímabilið mitt verið langt og strangt. Ekki nema einn og hálfur mánuður eftir. Eins og ég segi og þið hafið lesið þá er ég búinn að setja líkamann í mikið álag á þessu tímabili. Það hefur klárlega skilað sér enda hef ég náð að koma mér í gott form eftir meiðslin og risið úr því að eiga ekki að spila handbolta áfram og í það að vera valin í b-landslið.
Ég upplifi það þegar ég spila með jafnöldrum mínum að ég er á eftir þeim. Ég á meira inni en þeir og það er bara spilæfingin. Allir þessir strákar hafa verið að spila 2 leiki í viku síðast liðin 3 ár en ég ekki. Tvö tímabilin áður en ég meiddist spilaði ég bara með meistaraflokki, 20 mín í viku. Ég held því að þegar ég næ þessum strákum í spilæfingu þá verði ég töluvert sáttari með mig sem handboltamann. Það er líka allt að koma, enda hef ég spilað núna 6 leiki á síðustu 2 og hálfri viku.
Ég fór að lyfta áðan. Teygði líka smá, það þarf að sinna þessum vöðvum. Ég er þá kannski ekkert hættur, ég nenni samt ekki að gera þetta af einhverri skyldurækni, þið megið endilega kíkja á þetta væl samt í mér. Annars er það bara rúgbrauðið, fyrir fólk sem vill sjúga í sig menninguna.
Wednesday, March 26, 2008
Tuesday, March 11, 2008
ég er hættur með þessa síðu í bili. Nenni þessu ekki í augnablikinu. Ég er þó alveg líklegur til þess að henda einhverju inn hér við og við, en fyrri virkni síðunar er ekki það sem koma skal.
Ég reikna samt með því að fara á fullt með síðuna í sumar og segja frá því helsta sem er að gerast þá.
Einnig mun ég útskýra það í lok tímabils afhverju ég nenni þessu ekki núna.
Ég reikna samt með því að fara á fullt með síðuna í sumar og segja frá því helsta sem er að gerast þá.
Einnig mun ég útskýra það í lok tímabils afhverju ég nenni þessu ekki núna.
Wednesday, March 5, 2008
ég fór á skotæfingu, skaut í rólegheitunum. Nennti ekki actioni. Mér finnst það líka mikilvægara að vera að fá tilfinninguna. Bara upp á hittnina og svona. Tók allar skot´typu fyrir, útum allan völl og bara svona 5-10 skot af hverri týpu. Kannski svona 100 skot.
Ég bætti svona 50 skotum við með þungum bolta, svipað prógramm. Ég var alveg undarlega þreyttur í hendinni. Þannig að ég gerði minna en ég ætlaði mér.
Ég bætti svona 50 skotum við með þungum bolta, svipað prógramm. Ég var alveg undarlega þreyttur í hendinni. Þannig að ég gerði minna en ég ætlaði mér.
Monday, March 3, 2008
Ég er búinn að klikka meira á örlagaríkum stundum núna heldur en ég hef gert allan minn feril. Ég veit ekki afhverju. Ég þarf að taka til og ég þarf að laga þetta rugl.
Saturday, March 1, 2008
ég gæti svoleiðis komið með niðurgang úr kjaftinum á mér núna. Útskýrt tapið á ótal vegu, komið með skíta afsakanir. En það er bara glatað.
Valur vildi meira, einbeittari, grimmari, betra dagsform, betur undirbúnir og kannski ein afsökun, voru með tvo svarta hauka í horni í leiknum.
Manni langar nú mest af öllu að fremja sjálfsmorð núna, enda fátt meira niðurlægjandi eins og að tapa fyrir Val í bikarúrslitum, sérstaklega slæmt þegar þeir voru að rústa okkur. Við náðum þó að vakna, en alltof seint, hefði með smá heppni getað orðið einhver leikur, en það kom ekki.
Þessi vika hjá mér fyrir leikin var hræðileg, ég þarf núna að byrja að æfa aftur að krafti, eða skjóta á fullu og ná mér af þessum nárameiðslum. Koma síðan í góðu formi til þýskalands um páskana þar sem u-88 liðið mun spila undankeppni fyrir EM í sumar.

"you know what you are, what your made of, war is in you blood! dont fight it, you didnt kill for you country, you killed for yourself, god is never gonna make that go away"
gott John Rambo qoute. Maður getur hreinlega ekki hafnað því sem er okkur blóði borið, Rambó veit það best af öllum mönnum, war is in your blood. Það er bara þannig.
gott John Rambo qoute. Maður getur hreinlega ekki hafnað því sem er okkur blóði borið, Rambó veit það best af öllum mönnum, war is in your blood. Það er bara þannig.
Subscribe to:
Posts (Atom)