Thursday, February 28, 2008

Inches

Við skitum upp á bak í toppslagnum, hræðilegt alveg, ég var ekkert spes, bara farþegi. Skoraði að vísu eitt mark se ég var hrikalega ánægður með.

Hugsanlega mikilvægasta vika lífs míns hingað til og leikur í kjölfarið á laugardaginn. Ég hef ekkert getað gert aukalega hingað til. Ekki verið hægt. Smávægileg meiðsli í gangi. Pain is temporary, quitting lasts forever er setning sem ég er farinn að hugsa um nánast á hverri sekúndu. Það verður ekki vandamál.

þegar stórir viðburðir nálgast í lífi mínu, leikir eða annað þá leitar hugur minn alltaf á sama stað fyrir mótíveringu. Al Pacino í Any Given sunday.

I dont know what to say really.. three minutes to the biggest battle of our professional lifes. It all comes down to this...

þið vitið hvað ég er að tala um, marg búið að kveða þessa vísu hér.

Saturday, February 23, 2008

rug.braud.in

það er ný síða að tröllríða netheiminum. síðan rug.braud.in, nokkrir félagar að koma saman í lókal djók sem fáir skilja og reyna skilja. Við erum að hýsa síðuna á Indlandi til þess eins og geta boðið upp á góðin braud.in varíanta.

Ég mæli með þessu.

Það er leikur á morgun við Hauka, ég held að hann sé í sjónvarpinu. Verðum að vinna þetta, til að vera á undan val og að jafna hauka. Síðan er bikarúrslitaleikur á lau eftir viku. Ég á eftir að taka skotæfingu og eitthvað fyrir þetta og í raun alveg smurning hvort maður gefi upp eitthvað hvað maður er að æfa, þar sem Valsmenn léttir í lund kíkja reglulega við. Maður veit nú samt aldrei.

Friday, February 22, 2008

Jafntefli við stjörnuna. Ég skoraði 7 átti alveg þó nokkuð af stoðsendingum, kannski 5, fiskaði mann út af og braut 4 sinnum þannig að við fengum fríkast. Þetta eru ágætis tölur, en ég gerði helling af mistökum, skotnýtingin var ekki nema 50% sem er kannski alveg viðunandi þar sem ég tek mikið af skotum þegar sóknir fara í þrot. Svo er ég með einhverja 4 tapaða bolta, sem ég er ósáttastur við.

Ég átti alveg stóran þátt í því að koma okkur yfir eða í jafntefli, en klúðraði því síðan líka tilbaka, þakka Jóa fyrir að jafna þarna í lokin, karakter eftri klikkið í Rúmeníu og líka þar sem hann spilaði ekkert sérstaklega allan leikinn eins og hann sagði sjálfur.

Ég var hrikalega þreyttur í þessum leik, veit ekki hvort það var ekki nógu gott spilform mitt, sem mér finnst ólíklegt þar sem ég hvíldi í vörn, nánast allan leikinn. Það voru tvær eiginlega frekar þungar æfingar í fyrir leikinn, sem mér finnst frekar vera skýringin. Þar sem við vorum flest allir frekar þungir.

Þetta orsakaði það að ég klikkaði alveg í endann, mitt prime time er oftast á síðustu sekúndunum, mér líður sjalda jafnvel og í jöfnum leik á síðustu mínútum leiks. Þá verð ég hrikalega yfirvegaður. Það var engan veginn til staðar í dag. Ég tók hræðilegar ákvarðanir, gerði erfiða hluti og fleira.

Svona oftast, þegar ég klikk eins og í dag, þá verð ég alveg brjálaður og óviðræðuhæfur eftir svona leiki. Ég er alveg furðulega léttur. Ég þykist líka viss um að ég eigi ekki eftir að choke-a eins og ég gerði í dag aftur.

Svo er toppleikur við Hauka á sunnudaginn. Það er mikilvægasti leikur tímabilssins til þessa. Það er algerlega bannað að tapa þeim leik.

Svo langar mig til að benda þeim sem þekkja kappana eða kannast við að kíkja á bloggsíðuna sem Atli og Steini lofuðu í kommentunum eftir að ég baunaði smá á þá. Hrikalega gott efni á ferðinni.

www.rugbraud.blogspot.com

tökum á því

Tuesday, February 19, 2008

Gillz-Rúnar var skot yfir mark, greinilega. Ég hafði þó gaman af því.
Ég mun halda upp á það með að spjalla eins og rjómi við ykkur.

Ég var kominn í ofþjálfun, áður en ég fór út. Ég var byrjaður að fá beinverki í bakið og var illt í olnboganum, stífur í náranum, illt í hásinunum og ég gæti haldið áfram. Eftir leikinn á þriðjudag voru bara létt skot og fótbolti, fimmtudagur fór í ferðalag til Rúmeníu og svo var létt æfing á föstdag. Ég spilaði síðan lítið í leiknum á laugardag því að ég sökkaði, ég hreinsaði mig af slæmum straumum og spilaði vel á sunnudag, en það dugði ekki til, spilaði einhverjar 40 mín tæplega. Mánudagur fór síðan í ferðalög.

Þessir dagar voru þægilegir fyrir mig því eins og þið sjáið var æfinga og keppnisálag á mér ekki mikið, svo er það bara þannig í svona keppnisferðalögum að maður borðar vel og liggur eins og skata á hótelinu allan daginn. Líkami minn er því ekki í jafnmiklu hnjaski og almennu helli sem er jákvætt.

Ég verð því að passa mig aðeins í æfingunum svo að ég hellist ekki upp aftur, ég var farinn að halda að ég væri hryggbrotinn aftur. Það er eitthvað sem ég vill ekki bjóða mér upp á. Færri aukaæfingar þýða þá kannski færri blogg, en þó veit maður aldrei. Þessi ferð gaf mér líka tíma til að læra á imovie í minni snilldar macbook tölvu sem gerði mér kleift að gera þetta ágæta myndband hér að neðan. Ég fæ seinni leikinn vonandi á tölvuna mína bráðlega, seinni leikinn við Timisoara og þá mun ég klippa þetta helsta til og setja inn. Það er til að mynda frábært sirkusmark sem ég skoraði og er ég vægast sagt spenntur fyrir því að sjá það sjálfur.

tökum á því...

Friday, February 15, 2008

Keppnis

Atli Már, það er klassa samband hér í lobbýinu á Hotel Timosuara.

Þjálfarinn okkar er strangur djöfull og kontról frík. Við máttum ekki fara útaf hótelinu í dag því hann vildi að við hvíldum okkur. Hressandi það. Rebelinn ég og óþreyttur, nennti ekki að hanga í lobbýinu þannig að ég fór upp á herbergi og lærði með fikti á imovie klippiforritið í tölvunni minni. Niðurstaðan varð þrusumetnaðarfullt myndband af mörkum mínum í seinni hálfleik við Val í vodafone höllinni.



smá kjánahrollur, jafnvel alla leið en þetta vekur upp góðar minningar fyrir menn eins og Atla Má og Jón Ben. Ég held samt að menn geti verið sammála í því að ég fari í klippibransann gangi handboltaferill minn ekki upp.


ps. vill taka það fram ef myndbandið er ekki komið inn þá er þa útaf netfokki hér, einstaklega hægt samband. Það fer þá inn bara við fyrsta tækifæir heima

Önnur Umferð

Jæja, þar sem Rúnki er að skíta á sig í boltanum og nú farinn til Rúmeníu þar sem er örugglega ekkert netsamband þá hef ég ákveðið að þrusa annari færslu hingað inn.

Þeir sem hafa komið í Lágafellslaug sem er uppí Mosfellsbæ vita að sturturnar þar eru sjálfstýrðar þ.e. þær bara hætta að sprauta eftir svona 2 mín sem er auðvitað, virkilega pirrandi. Ég hef verið að kanna þessa stöðu undanfarið og áttað mig á eftirfarandi stöðu: 2 sturtur í gangi = temmilega heitt, 3 sturtur = vel heitt og fjórar sturtur eru síðan frekar mikill sekkur. Ég hef enn ekki farið í það að virkja 5 sturtur í einu þar sem að til þess þarf frekar mikla hreyfingu og vinnusemi af minni hálfu sem ég nenni ekki eftir æfingar en út frá fyrri reikningum sé ég bara tvennt sem getur komið út úr þessu annað hvort a) funandi hiti sem væri fínt eða b) ennþá meiri sekkur sem er ömurlegt. Þeir sem lesa þetta og ákveða að skella sér í laugina mega halda áfram rannsóknum mínum sem ég bendi á að eru enganveginn vísindalegar á nokkurnhátt og í raun hafa hvorki viðmið eða skjöl til staðfestinga.

Svo er líka bara alltaf hægt að fara í hinn sturtuklefann þar sem eru 2 sturtur sem hægt er að stilla sjálfur bæði hita og kraft.

Ég var búinn að lofa að tala um crewið sem ég væri kominn inní en svo virðist sem það hafi flosnað uppúr því um leið og ég hélt að þetta væri allt að detta í gang. Tveir virðast vera hættir að mæta og svo er ég að kynnast hinum og þeir virðast vera temmilega leiðinlegir. Það eru þó nokkrir sem vekja áhuga minn. Fyrsta ber að nefna gæja sem koma alltaf tveir saman (þó annar sé að vísu byrjaður að mæta mun minna en mér heyrist það á hinum gæjanum að hann sé nýbúinn að eignast barn, sem er þá skiljanlegt) en þessir tveir eru greinlega tölvunjörðar (er það nörðar eða njörðar, ég mun nota njörðar í þessari færslu) og kýs ég að kalla þá MassaNjörðana hér eftir. Þeir vinna greinilega hjá einhverjum tölvufyrirtækjum og eru í raun ávallt annaðhvort að tala um einhverjar tengingar og móðurborð eða þá einhvern leik og að því er virðist og eftir minni bestu vitneskju virðist þetta vera leikurinn World of WarCraft eða WOW. Þeir eru held ég mjööög harðir WoW spilarar, sem kemur já, gríðarlega á óvart. Samt ekki þar sem ég þekki annan pínu og hann hefur alltaf átt þetta til en samt, fyrir hið óþjálfaða auga er þetta mjög mikið upset.

Annar sem ég ætla að tala um er RemaxMaðurinn. Þessi gæji er víst yfirmaður einhverjar ReMax sölu og er virkilega mikill pakkakassi. Hann hinsvegar heldur að hann sé það heitasta á markaðnum síðan djúpsteiktur kjúklingur varð til. Hann og einn þjálfarinn í ræktinni eru einhverjir kumpánar og teymi sem sífellt eru með groddastæla í ræktinni, þó aðallega ReMaxMaðurinn sem er bara eitthvað undarlegasta fyrirbæri sem ég hef kynnst. Ég hélt að hann væri góður á því en svo reyndi ég eitthvað að spjalla við hann í sturtunni og hann eiginlega talaði við mig eins og ég væri einhver kjúklingur, og ekki djúpsteiktur, heldur bara, hrár. Eftir það hefur mér líkað illa við hann. En svo áðan, þá byrjaði hann að peppa, ég var að taka armbeygjur og var alveg búinn á því, gat varla meira, þá stillir þetta kvikindi sér upp við hausinn á mér og byrjar að segja: "5 í viðbót!" og ég bara, fokk, byrjaði að taka 5 í viðbót en komst bara uppí 4 með gríðarlegum erfileikum vegna þess að ég var búinn að taka virkilega grimmilega á því. Ég dett niðrí jörðina af máttleysi og þá segir vinur minn "jæja, þú tekur þá 3 í viðbót núna fyrst þú gafst upp". Djöfulsins hálfviti. Síðan er þessi gæji að væla eins og einhver drullupollur yfir einhverju sem hann þarf að gera. Sá hann líka um daginn, þegar einhver var að segja við þjálfara að skáhallandi bekkurinn sem er nýkominn hafi fokkað honum eitthvað upp, segir ekki minn maður "þú verður náttúrulega að kunna almennilega á þetta maður" og ég segji það og skrifa, ég hef aldrei, -nokkurtíman- séð ReMaxManninn fara í þennan bekk. Og þessi sem hann fleygði þessum orðum í var mjög stæltur og leit alls ekki út fyrir að vera að þessu í fyrsta skipti.

Ég ætlaði líka að tala um sætu stelpurnar sem ég sá um daginn en þær hafa ekkert komið aftur og ég hef í raun misst áhuga á þeim. Sérstaklega þar sem ég er orðinn mjög hrifinn af sjálfum mér. Meira en venjulega.

Einnig vil ég benda meistaralesendum á commentið sem Gunnar Skúlason kom með hérna fyrir neðan, það er pjúra snilld og ætti maðurinn að vinna í líkamsræktargeiranum, það er alveg fullljóst.

RXB kveður stinnur sem leður.

Wednesday, February 13, 2008

Við unnum í gær. Ég hef aldrei upplifað annað eins kraftleysi á ævinni minni. Mér leið eins og boltinn væri 7 kíló og ég gæti ekki hoppað. Óskiljanlegt. Frekar glatað að vera alltaf ferskastur manna á æfingum og drulla síðan upp á bak 2 leiki í röð. Frekar leiðinlegt.

Menn eru eitthvað að tala um að æfingarnar séu bara of margar og eitthvað. Kannski er það málið. Þetta er allavega hrikalega svekkjandi.

Tuesday, February 12, 2008

Ég kíkti í FRAM í gær, aldrei þessu vant. Æfingin okkar 1930 en ég var mættur 18, tók smá magaæfingar á boltanum mínum, sem hann Baldvin í val kenndi mér. Svo fór ég í 20 mín af þungum bolta í boltanum eða tímamótaæfingunni sem ég skírði frá hér fyrir stuttu síðan.

Leikur í kvöld við Akureyri í bikarnum.

ég ætlaði á skjóta núna áðan í hádeginu en það voru einhverjar bumbur að spila fótbolta í salnum, helvíti svekkjandi.

Sunday, February 10, 2008

Leikur við Akureyri í gær, mér fannst við vægast sagt slakir og ég var enginn undantekning, ég og við eigum slatta inni. Ætli það sé ekki bara frábært að við eigum að mæta þeim aftur á þriðjudaginn í bikarnum.

Við áttum að skokka og fara í pott í dag. Ég nenni ekki að skokka í slabbinu og svo fæ stífna ég allur upp í kálfunum og bakinu við að hlaupa á bretti. Þannig að ég tók bara smá lyftingar, bara létt og rólegt, smá janfvægis sem ég segi frá síðar, sem Heiddi í fótboltanum kenndi mér, einhvr sænsk týpa.

Ég er samt á leiðinni í pott.

Annars langar mig að lýsa yfir gríðarlegri ánægju með færsluna hans Atla hér að neðan, drengurinn verður með Gas-man í vasanum eftir veturinn.

Friday, February 8, 2008

This is my shit!

Velkomnir góðir gestir, Atli Már hér öðru nafni Mosfellsmaðkurinn sem ég veit ekki hvort ég sé að fíla það vel sem gælunafn, en látum það liggja á milli hluta.
Eins og kannski flestir þeir sem hafa litið inná þessa síðu reglulega hafa gert sér grein fyrir hefur Ronnie Works tekið að sér hliðarverkefni sem snýst eingöngu og gjörsamlega í kringum mig, að þyngja mig og massa. Eins og það sé ekki nógu mikið challenge fyrir þá hafa markmiðin orðið stærri og orðin orðið fleiri (þá oft í samráði við Gunnar Harðarson, þann mikla meistara) og er markmiðið nú 80 kg fyrir næstu Skriðu, þ.e. næstu verslunarmannahelgi. Það þýðir á mannamáli, 14 kg á 8 mánuðum, cirka 1,75 kg á mánuði, takk fyrir mig. Rúnar hefur að vísu enga trú á þessu en það höfum við Gunnar enda draumóramenn eins og flestir meistarar. Eitthvað hefur líka verið rætt um að ég muni þá taka Þorstein Kára í bóndabeygju en ég efa að vísu að það gerist enda er smorrebröd og bjór ekki megrunarmatur hvað sem Þorsteinn segir.

Hér er mynd af mér síðustu verslunarmannahelgi:
Photobucket
(Já, ég er nakinn á þessari mynd, það henti enginn ninjastjörnu beint fyrir gæjann um leið og myndin var tekin. Ég er nýkominn úr sánu, með klút og sólgleraugu, svipuð aðstaða og ég verð í eftir 8 mánuði...)

Hér er svo mynd af mér með fíla g-streng sem ég á:
Photobucket
(Þess má geta að hér verður mynd af mér að 8 mánuðum komnum helrippuðum og svæsnum.)

Vá, ég man ekki hvað ég var að tala um það tók svo langan tíma að redda þessum myndum. Ég er byrjaður á Kolvetnisblönduðu kreatíni frá EAS og svo í dag tók ég einn skammt af Meal Replacement frá ToppFitt eða einhverjum djöflinum, íslenskt fyrirbæri, helvítis vindverkir sem fylgja núna.

Ég spurði mig áðan af hverju ég væri í raun að þessu, hvað væri það sem orsakaði það að ég leitaði í að breyta lífsháttum mínum svona svakalega. Af hverju væri ég ekki bara uppí rúmi að horfa á dvd. Þá leit ég í spegil og svarið það svoleiðis starði í augun á mér. Uuuusssssss!

Ég ætlaði að skrifa þessa færslu síðastliðinni miðvikudag enda hafði ég ætlað þá að hafa farið í ræktina mán, þrið og mið eftir stífu prógrammi Rúnkarans, hinsvegar vaknaði ég upp á miðvikudag með þennan þvílíka vírus í líkamanum og kastaði því upp, 10 sinnum, á 4 tímum cirka og lá síðan með 39 stiga hita það sem eftir var dags. Núna föstudag er ég nýkominn úr ræktinni þar sem ég tók skuggalega á því og er mjög þreyttur eftir, ég sagði reyndar við Rúnar að ég væri tæpur vegna þreytu en hann svaraði að maður yrði bara að vinna sig í gegnum hana, og vann ég svo sannarlega. Kom síðan heim og talaði við múttu, hún spurði af hverju ég hefði ekki hvílt mig. Ég svarai því um hæl: "því þeir sem hvíla sig ná engum árangri". Síðan stoppaði ég, leit í spegil og tjékkaði hvort þetta væri ekki í raun ég í speglinu, en ekki Susan Sarandon í myndinni "Freaky Friday" (http://www.imdb.com/title/tt0322330/)

Ég ætla ekki að hafa þetta lengra, ég hef þó meira til að fjalla um eins og crewið sem ég virðist vera kominn inní sem og 2 sætu stelpurnar sem ég sá í dag í ræktinni sem ég hafði ekki séð áður. Það var virkilega skemmtilegt enda hélt ég að ein þeirra væri að horfa á mig, en svo getur vel verið að hún hafi verið að horfa í spegilinn. Sem ég er byrjaður að gera meira og meira af. Svo líka um gæjana sem voru þarna um daginn sem fóru virkilega í taugarnar á mér. Þetta er allt umræðuefni morgundagsins. Eða einhvers annars dags.

"Til þess að fá salsa á maísinn, þá verður maður að rækta akurinn."

A-Town, úti.

Thursday, February 7, 2008

Qoute

Eitthvað að lokum?

Verðum við ekki að enda þetta á tilvitnun í Michael Jordan # 23
"Some people want it to happen, some wish it would happen, others make it happen"
Í boði Einars Inga Hrafnssonar línusérfræðings og hlutabréfabraskara úr Mosfellsbænum.

þetta eru lokin af viðtali við Óla Gísla markmanns í Val sem tekið var á handbolti.is, það er fátt jafndýrt og að qoute-a í His Airness og verðum við að elska það í alla staði.

Þetta minnir mig nú samt einungis á viðtal sem við Jordan sem sýnt er í heimildarmyndinni um kappan MIcheal Jordan:His Airness, mynd sem ég á og mynd sem ég hef séð án gríns svona 23 sinnum, táknrænt ekki satt?

"As an athlete i wanna be there for my team.....what ever that needs to be done I do it, offence,defence, scoring, passing or blocking"


Ekki ónýtt það.

Óli sækir þarna tilvitnun sem Einar hefur mjög gaman af og hef ég gaman af annari tilvitnun sem Einar er með sem tagline á msn. Slúttum þessu á því.

"pain is temporary, quitting lasts forever"
Ég fór á skotæfingu í hádeginu í gær, Einar Jónsson var eitthvað að taka mig í gegn, maðurinn hefur ákveðnar hugmyndir um hvernig á að gera þetta. Fínt að fá eitthvað smá svona utan að komandi, þótt Einar sjái nú flestar æfingar, leiki og sé alltaf eitthvað að skipta sér að.

Skaut í svona 45 mín, ásamt því að spjalla heilmikið um hvernig ætti að gera hlutina. Fundur og æfing í gærkvöldið, svo var b-liðsleikur. Ég ætlaði í einhverri skyndi að taka þátt í leiknum, byrjaði hann, spilaði fyrstu 5 mín kannski 10. Tognaði í litla puttanum og áttaði mig á því að ég væri búinn með kvótan í dag. Ég er að vísu eiginlega alltaf tognaður þarna. Þannig að þetta er ekkert stórmál.

ég póstaði fullt af slóðum og myndböndum í upphafi þessa bloggs sem ekki allir hafa tjekkað á, ég hvet fólk til að lesa það.

http://www.coachmarian.de/Spezials/Workouts/BaronDavisNBAworkout.html

þetta er slóðin að æfingaprógrammi Baron Davis eitt sumarið. Baron er þekktur fyrir einstakan sprengi kraft og er til dæmis eftirminnilegt þegar hann tróð yfir AK-47 (andrei kirilenko, utah jazz) eða í raun hoppaði yfir hann. Ég hvet ykkur sérstaklega til að lesa divide and conquer hlutan, sem mér þykir mjög fróðlegur.

Monday, February 4, 2008

taka tvö

heldur betur, hér í vídjóinu að neðan má sjá mig taka ágætis prógramm, nettur hringur sem ég bjó til og fínpússaði með Einari Inga, við tókum þetta prógram 5 sinnum og var svoan smá extra.

Lyftingarnar sem Feri bauð upp á voru suddaruddatudd, ég gat ekki hreyft hendurnar eftir það, og armbeygjurnar í myndbandinu gerðu okkur Einari erfiðara fyrir. Svo var púl. 3 tíma rugl í dag. Það er keppnis.



tökuvélin er minn magnaði 10 þúsund króna sími sem var að hefja sitt þriðja ár í notkun, ekki dónalegt það.

ps. Muscle Armorinn er mjög þéttur, mæli með honum fyrir þessa handboltakappa sem kíkja hingað inn, kreatín er búið, muscle armor er málið

pps. Mosfellsmaðkurinn var að lyfta í dag, samkvæmt dagskrá og fáum við sma status á því á morgun, ég ætla biðja þig Atli að gefa það ekki upp í kommentunum
já já já já já

nýtt hundrað, nýtt myndband.

Það verður boðið upp á rándýrt myndband í kvöld, æfing 1930-2100, lyftingar 1845, Rúnar og Einar Ingi i extra 1800 og frá því verður skýrt síðar í kvöld í formi myndbands.

Kæru lesendur fáið ykkur pampers því þið munuð míga í ykkur af spenningi fyrir myndbandið.

3 tíma session fram undan, það er keppnis enda er þétt leikjaprógramm fram undan.

Við erum spennt fyrir myndbandinu...

Saturday, February 2, 2008

afmæli

þetta er afmælisfærsla og hún verður glötuð. Þetta er sem sagt færsla númer 100, hinar 99 hafa veri skeinandi snilld og verður áframahald á því.

Við unnum eyjapeyja í leiðinlegum leik. Aldrei í hættu. Ég skoraði 6 var þokkalega sæmilegur, þarf að gera eitthvað í vörninni hjá mér. Það er dagskrá vikunar, varnarskref og fótavinnu æfingar út í gegn.

Atli bað mig síðan að skila því til ykkar að hann væri farinn að skíta orkukúlum. Hvað það er og hvað Atli er að meina er erfitt að greina, en maðkurinn er á fleygiferð. Það er skjalfest.

100 færslur, geðveikt

Friday, February 1, 2008

Muscle Armor

Umræðurnar í síðustu færslu voru einstaklega ánægjulegar. Atli Már er nú farinn að spá mikið í kreatíni sem viðbót í átakið sitt, eftir að Steini ögraði honum alla leið. Mosfellsmaðkurinn lætur ekki bjóða sér það.

Vill benda á að fyrstu línurnar hér að ofan voru skrifaðar snemma í dag og margt búið að gerast síðan. Við fórum og keyptum kreatín á maðkinn. Hann gat ekki labbað eftir work outið áðan og er ekki hægt a segja annað en að með þessu áframhaldi og metnaði í maðkinum verði hann tuddalegur.

Ég splæsti líka í nýrri týpu og er hún rándýr, 8000 kall á einhverju rugl tilboði samkvæmt síðu eas liða. Muscle Armor heita gæðin og hef ég tröllatrú á þessu. Þetta er þar að auki þrælgott á bragðið og mjög svalandi eftir æfingar.

http://www.eas.is/?item=41&v=item

Fyrsti leikur á morgun eftir pásu, West man Islands döpur staðreynd, ég hreinlega hata place-ið og geri það sterkar eftir að steypugólfið þar braut á mér olnbogan í fyrsta leik í haust. Það verða hlífar fyrir allan peningin á morgun. Svo margar að Gummi Gumm hefði skammast sín back in 83'.

stefnan er síðan sett á ómannlegar æfingar í næstu viku, kominn tími á eitthvað rugl. Varnarvinnan og skot tekin fyrir ásamt þessu almennu lyftingum. Þreyta er hugtak sem við höfnum hér á Ronnie works