Wednesday, January 30, 2008

Ronnie works er að fara að launcha hliðarverkefni, Atli Már félagi minn sem skrifar iðulega komment hér undir fáranlegum nöfnum er byrjaður í ræktinni og hef ég ákveðið að rétta honum hjálparhönd. Atli er 185 og 32 kíló, án gríns. Það þarf því að koma kjöti á drenginn. Ég geri mér fyllilega grein fyrir því að ég er enginn einkaþjálfari en ég veit þó meira en hann um málið og ætla því að koma drengnum af stað.

Ætli Atli leyfi lesendum ekki að fylgjast með með gestapistlum. Það yrði vægast sagt spennandi.

Tuesday, January 29, 2008

Ég tók smá session á boltanum fyrir æfingu um daginn, leikmenn mfl voru svo heillaðir af þessu að þeir vildu prófa, sem náttla setti prógrammið úr takti. Ég var ekkert að gráta það, maður verður að breiða út boðskapinn. Það kom mér á óvart hvað þeir þríri sem prufuðu þetta voru gjörsamlega jafnvægislausir á boltanum, voru í mestu vandræðum með að halda jafnvægi á honum. Tala nú ekki um þegar þeir reyndu að hamra þunga boltanum, þá runnu þeir bara aftur fyrir sig.

Það er því ljóst að jafnvægið hjá mér er ágæt, frekar sáttur með það bara, sjúkraþjálfarinn minn sagði líka að það væri nokkuð gott að geta haldið svona jafnvægi. Það er eitthvað, það er eitthvað.

Þetta var samt að slá í gegn, jafnvel að hægt verði að tala um byltingu í þjálfun í íslenskum handbolta. En við erum þá að sjálfsögðu að missa okkur í gleðinni ef við höldum því fram. Það er náttla ekkert gaman af þessu nema með hrokafullum yfirlýsingum, ýktum sögum og frösum sem fá mann til að verkja í kálið. Það er bara þannig.

Ég hef nú ekki fundið nafn á þessa frábæru æfingu mína. Þótt að hún verði jafnvel kölluð að púlla Rúnar Kára seinna meir, þá er frekar kjánalegt fyrir mig að segjast vera að púlla sjálfan mig. Þetta er allavega training secret nr.1

verði ykkur að góðu

Saturday, January 26, 2008

Mindblowing efni

Ég tók tuddalegt session í gær, svo ekki sé minna sagt. Ég var mættur í Framhöllina klukkan rétt fyrir 2. Ég er eins og aðrir handboltamenn og konur landsins búinn að vera að glápa á HM eða það sem Rúv hefur boðið upp á. Það sem vekur áhuga minn núna eins og á örðum stórmótum eru náttla þessar skyttur. Þær eru í ruglinu. Skotharkan. Stökkkrafturinn og svo líka bara það að þessir gæjar eru að hanga í lyftinu í kontakt, eru að halda jafnvægi og eru samt að plaffa svo hrikalega á markið að markmenn eru að fá martraðir margar vikur eftir það.

Mindblowing stöff, svo ekki sé minna sagt. Þetta er vangefið rugl.

Ég er einhver veginn að fikra mig áfram í þessu, hvert leyndarmálið sé og hvernig í andskotanum ég geti náð þessum rudda upp. Þannig að ég fór með svona bolta út í FRAM.
Ég sem sagt stend á þessum bolta að er á hnjánum á honum í uppréttri stöðu, byrjaði workoutið á að senda í vegg bara með venjulegum handbolta, skipti seinna meir yfir í 600 gr. þungann bolta og svo enn aftur í 800 gr. þungan handbolta. Ég gerði þessar æfingar mikið fyrir hryggbrotið, sem sagt svo stabílisserandi æfingar fyrir bakið og er það alveg þokkalega erfitt að halda svona jafnvægi, tala nú ekki um ef þú ert að kasta og grípa bolta.

Ég náði nú fljót tökum á þessu og fannst þetta ekki alveg gefa mér nógu mikið. Þannig að ég breytti til. Ég færði boltann á punktalínuna, fyrir miðju marki og sótti bolta grindina og staðsetti við hliðina á mér. 6 boltar í notkun, 4 venjulegir handboltar, einn 600 gr. bolti og einn 800 gr. Síðan var það bara að dúndra eins fast og maður getur án þess að missa jafnvægið. Það var frekar erfitt, sérstaklega að hitta og sérstaklega upp í Samúel Örn. Það sem var erfiðast var að kasta 800 gr. boltanum, enda er maður þannig séð í lausu lofti, krafturinn var því sá sami og enginn og ég hitti ekki bofs.

Hugsa að næst þegar ég taki þessa týpu verði ég eingöngu með 800 gr. bolta, það ætti að gera eitthvað fyrir kraftinn og jafnvægið í loftinu.

Ég tók síðan líka einhverja fótavinnuæfingar. Sippaði, tók nett prógramm. Sippaði í mínútu og hvíldi í mínútu tók 5 þannig. Ég gerði eitthvað meira en man það ekki núna.

stay tuned...

Friday, January 25, 2008

Ronnie Chan

ég hef ákveðið í virðingarskyni við Rikka Chan, sem kallaður var af sínum nánustu Ronnie Chan, án gríns, að mitt nýja viðurnefni en samt það gamla uppfærist úr Ronnie í Ronnie Chan

takk fyrir,
kveðja,
Ronnie Chan

Wednesday, January 23, 2008

Fátt um fína drætti undanfarið, bloggið er í duftinu og landsliðið er meiriháttar. Það eru einhvern veginn allir að kryfja mig um einhverjar skýringar á gengi landsliðsins og þá er ég að tala um svona 90 prósent dagskólanema Menntaskólans við Hamrahlíð sem eu líklega svona 900 manns. Einstaklega þreytandi. Ég hef fáar skýringar, einum of margir að eiga slakt mót, fáir í sínu besta formi. Allar væntingar voru ofmat. Það hefur bara aldrei gert íslendingum gott að halda að þeir séu eitthvað góðir, við förum þetta frekar á geðveikinni þegar enginn býst við því.

Ég ætla ekki að afsaka hversu slakt bloggið er orðið enda ekki tilgangur þess að vera með vikulegan pistil og það væri líka fáranlegt ef ég væri alltaf að tíunda sömu æfingarnar fyrir ykkur. Ef þið hafið einhvern áhuga á þessu þá mæli ég með að þið lesið fyrstu mánuðina aftur. Ég er í smá lægð núna, nenni ekki að æfa að krafti vill bara fara að spila alvöru leiki, má segja að þetta sé aukaæfingaleiði. Það er líka bara mikilvægt að vera ekki alltaf að hjakka í sama farinu.

Adios

Friday, January 18, 2008

Ekkert um aukaæfingar, það er bara þannig stundum, ég er líka búinn að vera hálf slappur síðan ég kom heim, svefn í ruglinu og svo er ég eitthvað tæpur í maganum og hálsbólga. Þetta er samt allt að koma til. Æfingahelgi hjá 88 landsliðinu og erum við núna búnir að hittast alveg virkilega reglulega á árinu, ég búinn að vera meiddur eitthvað á þeim tíma en við erum alltaf að þéttast sem lið. Við erum líka metnaðarfullir með þetta lið eftir ansi dapra byrjun.

Leikur áðan og tveir eftir um helgina. Það gerir okkur gott og mikil keyrsla alltaf í þessu. Þetta er eiginlega bara frábært fyrir mig, því að ég er alltaf að bæta við spilformið sem náttla var í lamasessi eftir meiðslin og skertan spiltíma áður en þau komu til sögunar. Ég er því alltaf að eflast og er náttla ekkert nema gaman af því.

Þá er bara að vona að landsliðið bjóði upp á einhver gæði það sem eftir lifir móts þetta er náttla ekki hægt eins og það var í gær.

Sunday, January 13, 2008

ég spilaði loks í þriðja leik á æfingamótinu. Norðmenn andstæðingar og er ég bara sæmilega sáttur með minn leik. 5 mörk og held ég 4 stoðsendingar. Allt í fyrri hálfleik. Ég var síðan ekkert spes í seinni. Ég var síðan laminn í grímuna og fékk putta í augað sem fór líklegast upp að olnboga hann fór svo djúpt. Ég þurfti að fara út og ná áttum. Sá ekkert, pix í auganu og rugl.

Kom síðan eitthvað inn á en var passívur. Svo er líka töluvert erfiðara að setjann framhjá steinar ege heldur en pulsunni sem spilaði í fyrri hálfleik. Þeir slógu mig alveg útaf laginu að vísu vorum við allir í duftinu í seinni hálfleik.

Ég fékk svo hina frægu flengingu og var hún mjög óþægileg. Fúsi lokaði henni eins og öðrum flenginum með stórum skell. Það var alveg meiriháttar. Kemur mér lúmskt á óvart hvað þetta háir mér lítið, ég hef alveg heyrt af mönnum sem gátu ekki setið í viku og eitthvað vængefið rugl en það var ekki upp á teningunum.

Saturday, January 12, 2008

Já við strákarnir ykkar erum mættir til Lillehammer, 6 tíma rútuferð eftir leikinn áðan, sem vannst. Leikur hér í Hákonshöll á morgun. Við heimamenn. Það verður blússandi stemmning. 10 þúsund manns.

Friday, January 11, 2008

Noregur

sælt veri fólkið. Lítið að frétta, búið að vera frekar rólegt hérna í Hótel Britannia sem er annars hið fínasta hótel. Maturinn er fínn þó svo að ég sé búinn að vera í magakveisu í morgun. Er að losna við það samt. Tvær léttar æfingar teknar, ein í gær og ein í morgun. Við vorum bara aðeins að stilla strengina og jafnvel hrista strengina úr okkur líka. Leikur við Ungverja á eftir og eiga leikirnir að vera sýndir á stöðinni Tv2 sem er held ég á breiðvarpinu.

Wednesday, January 9, 2008

Heja Norge

Frí frá æfingum í dag, eða svona næstum því. Við áttum að detta í Klassann og grípa í stálið. Ég, Baldvin og Heimir mæltum okkur mót ásamt Jóa sem mætti ekki og tókum létt session. Það þarf ekkert að stikla á stóru varðandi þessa æfingu, ekkert nýtt svo sem, ég fór í létt klín eftir hopp með stigi á bekk í boði Heimis. Byssur og smá magi.

Það sem heillaði mest eru vibríngsvélarnar. Tjekkið á slóðinni fyrir nákvæmari útlistingar.

http://www.jumpusa.com/vibration_exercise_machine.html

Það eru þrjár svona græjur í Klassanum og er ég virkilega heillaður af þessu. Ekkert í líkingu við Baldvin þó sem var það hrifinn að það kæmi mér ekki á óvart ef hann væri búinn að eignast svona í enda mánaðar. Þetta á víst að gera magnaða hluti fyrir minni vöðva líkamans sem og liðamótin og að taka armbeygjur og tricep curls var alger snilld. Magaæfingarnar á maskínunni voru allt að því unaðslegar.

Ég tók að vísu smá extra klukkan þrjú í Framhöllinni, það var alveg æðislegt að koma þangað enda ekki búinn að láta sjá mig þar í viku. Sem er ekki gott. Alltaf jafn gott að koma heim eins og sagt er. Ég tók frekar þéttan fótavinnu/snerpu pakka á agilty ladderinum og skaut síðan bara létt í svona 25 mínútur. Bara með einn bolta, taka hreyfingar eins og í leik, prufa týpur sem ég geri sjaldan. Bara svona almennt að viðhalda hámarks tilfinningu fyrir þessu. Þá er bara að vona að maður geti tekið þessar æfingar allar með sér á völlinn í Trondheim.

over and out.

Tuesday, January 8, 2008

JÁ! ég er mega sáttur.

Saturday, January 5, 2008

Djöfuls tempó á þessum æfingum, allir að reyna að sanna sig og allir þar af leiðandi á blússandi fullu. Geðveikur barningur í gangi allar æfingar og allan tímann á þeim. Ég er alveg að fíla það fáranlega vel. Minnir mig ótrúlega að æfa með Sverre og BJögga Bjögg í denn. Þeir lömdu mann alltaf eins og harðfisk. Ég fílaði það svo vel að ég reyndi eiginlega alltaf að sækja á þá. Það var svo fáranlega gaman að skora á þá. Ekki að ég hafi skorað oft eða fintað þá. 17 ára strákurinn. Nei ég held að ég hafi fintað Sverre 4 sinnum yfir veturinn, án gríns. Hann átti samt alltaf erfiðara með að eiga við mig eftir því sem leið á veturinn.

ég er soddan haugur, dett eiginlega alltaf í eitthvað kæruleysis tempó á æfingum. Svona barningur kveikir alveg í mér, massívt. Ég er alveg að finna mig vel á þessum æfingum, ofangreindum barning að þakka, svo eru þessir tappar í liðinu drullunettir.

Tvær æfingar eftir og svo er niðurskurður.

kveð í bili

Friday, January 4, 2008

Lebron James



þessi maður er í ruglinu. Þegar hann var 16 ára, þá var hann þekktur um allt USA sem "The King" það er náttla nóg til að lýsa manninum. Ég dýrka hann.

Thursday, January 3, 2008

Landsliðs

tvær á dag síðustu tvo daga og frekar mikil keyrsla á öllum þeirra, maður er loksins búinn að hrista af sér jólin og farinn að getað kallað fram það besta í mínu formi. Er samt frekar þreyttur eftir þessa keyrslu. Æfði með unglingalandsliðinu í dag tvisvar og einu sinni í gær. Fór á æfingu með Fram í gær líka, en var samt bara með að hluta, massa púl í gangi og ég vildi ekki vera óferskur í dag. Hádegisæfing og svo leikur áðan við Víking. Gekk vel, vörnin ekki alveg að virka nógu vel og svona en unnum samt frekar léttan sigur, þótt Víkingar láti mann nú vinna fyrir þessu.

Svo tekur landsliðið við á morgun, það verður óneitanlega skemmtilegt og hlakka ég þó nokkuð til þess. Gaman að sjá hvar maður stendur og reyna að sjálfsögðu að stimpla sig inn.

Wednesday, January 2, 2008

2008

Nýtt ár gengið í garð. Ég veit ekki með áramótaheit, finnst það ekki alveg málið. Ég hef mín markmið og hef alltaf haft. Held að þótt að ég hafi í raun aldrei sest niður og sett mér markmið þá hef ég samt alltaf haft markmið. Eitthvað sem kemur bara án meðvitundar.
Ég man þegar ég var á yngra ári í 4.fl þá byrjaði ég að ímynda mér að ég myndi einhvern daginn koma inn á hægri skyttuna í 86 liði Fram, það gerðist síðan 4 mánuðum síðar og svona 2 mánuðum eftir það var markmiðið orðið 86 landsliðið, það datt í gang 2 mánuðum seinna.
Ég er með ákveðin markmið fyrir þetta tímabil, ég er held ég alveg að ná þeim og ef eitthvað var að marka rönnið sem ég var komin á fyrir jól og þá staðreynd að ég mun ekki draga úr æfingum núna eftir jól þá efast ég lítið um það hvort ég nái þeim.

Þessi blogg síða er búin að virka alveg eins og ég vildi að hún virkaði, fólk talar kannski um kjánahroll og allt það en fokk that. Þetta er feitt og þú ert að lesa.