Tuesday, August 12, 2008

I am him

Ég mætti á æfingu í gær 1820, aðeins að lyfta eftir langt frí. Þarf alltaf að lyfta vel á upphandleggin því ég er með ofteygðan bicep sem lýsir sér í því að ég fæ alltaf tennisolboga ef ég er ekki að hlaða byssurnar í hverri viku.

Ég tók því þrefalt sett af amerísku byssunum.

Tók einnig þrefalt sett af tricep, með handlóð.

Svo tók ég þrefalt sett af nýrri æfingu sem ég sá einn snilling gera mikið af í sumar. Þá tekur maður 5-6 kílóa handlóð í hvora hönd og tekur baksunds hreyfingar með höndunum. Hrikalega góð æfign verð ég bara að segja og nýtt uppáhald mætt.

Nú er ég í síðustu vikunni að vinna og eftir það skapast töluvert meira svigrúm til æfinga. Þá er fyrsta æfingamót að hefjast í næstu viku og fer óðum að styttast í tímabilið.
Ég get varla beðið.

0 comments: