All right, all right, all right, all right, all right, all right.
Það má segja að sumarið sé tudd eins og það leggur sig. Ég er búinn að æfa nokkuð vel það sem af er sumri, en engu að síður hefur þetta verið nokkuð þægilegt hjá mér, ekki nema svona einn og hálfur klulli á dag.
Ég beilaði á Jón Arnar prógramminu sem var alveg mjög solid ákvörðun held ég, er að rokka jump soles sem er plýómetrískar æfingar sem eru einum of solid stöff. Eitthvað sem frjálsar íþróttir einblína mikið á með íþróttafólki sínu.
Ég er að gera jump soles svona 2-3svar í viku og eru kálfarnir virkilega stífir svo ekki sé meira sagt.
Ég er að worka líka netta brennslu með þessu, bæði að taka langahjólatúra og svo að skokka í svona 30 mín.
Annars hlóð ég niður 2 Jordan myndum um daginn. Þessir NBA gæjar æfa svo ómannlega að ég hreinlega skil ekki hvernig það er hægt, skil það ekki. Svona 2-3 æfingar á dag í svona 1 og hálfan til 3 tíma í senn. Maður þarf að koma sér í svoleiðis pakka.
Annars er það að frétta að ég ætla að minnka jumpsoles niður aðeins og byrja að fókusa á axlirnar með og einnig almennar tækni og styrkaræfingar fyrir handboltan, fittur, drippl og svo vinna með medicine bolta varðandi axlastyrk og fleira.
Ég er búinn að kaupa mér fullt af æfingagræjum, undanfarið og í gegnum tíðina, þarf að sýna ykkur þetta dót. Ætla síðan að útskýra jumpsoles aðeins betur fyrir ykkur og sýna prógrammið betur og fleira.
Allt að gerast...
later
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
3 comments:
Gott að fá update á Ronkoo bloggið. Sjálfur er maður kominn í æfingagír með sumri.
Hvernig er það, er einhver tenging á milli Ronkoo og Rocco?
Ég er spenntur að sjá hvaða ráðstafanir verða gerðar eftir sukk verzlunarmannahelgarinnar. Ég vill sjá jafn mikinn metnað við bloggið og æfingarnar. Koma svo.
Þorsteinn Kári á heiðurinn af þessu nickname-i sem og öllum öðrum nöfnum sem hafa fest við mig.
Það er annars bein tenging á þessu, ég kom ekki inn í herbergi fyrir ári síðan án þess að menn kölluðu, Ronkoooooooooo Ronkooooooooo
líkt og Eddie Murphy gerði grín að ítölum að koma út af Rocky, hér um árið
Post a Comment