Ég var kominn í sumarfrí gær áður en leikurinn hófst. Ég skammast mín fyrir síðustu leiki hjá mér. Núna langar mig bara þvílíkt að bæta fyrir þetta djók. Sumarið verður tekið með trompi, ég ætla að koma mér í miklu betra hlaupa form en ég er í núna
og svo ætla ég að lyfta eftir prógramminu sem Guðjón var í hjá Jón Arnari.
Stefni á að æfa svona 5-6 í viku og verða 3 æfingar af þessum lyftingar æfingar, hinar verða hlaup, varnarkeyrsla og liðamótastyrkjandi æfingar.
Mikill léttir að þetta tímabil er búið. Mikið búið að gerast og mikið áreiti, þetta hefði getað orðið klassa tímabil, meiðsli lykilmanna ásamt því að ungverski þjálfarinn okkar var bara fáranlegur eyðilögðu þetta fyrir okkur. Feri eyðilagði tímabilið vikuna fyrir bikarúrslitin og þetta hefur bara ekki verið það sama eftir þann leik.
Ég setti mér háleit markmið fyrir þetta tímabil og ég að mínu mati búinn að ná þeim öllum.
Ég lærði helling á þessu seasoni og þótt kallinn sé spes þá voru fullt af góðum punktum hjá honum, ætli hans helsti veikleiki hafi ekki verið að hann þekkti ekki sýna veikleika.
Hann sagði við mig þegar hann var að horfa á æfingu hjá okkur eftir að hann var rekinn að ég gæti spilað vörn þegar mig langaði til. Ég þarf virkilega að taka varnarvinnuna í gegn, enda er hún bara í lagi í svona einu af hverju 5 tilvika og það er ekki nógu gott.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
5 comments:
Sóknin er besta vörnin.
Þetta er nú ekki alveg rétt hjá þér Guðmundur eins og vill nú stundum brenna við hjá þér gamli minn. Sjáðu bara Denver í NBA, eitt allra besta sóknarlið síðari ára en dettur út 4-0 í fyrstu umferð. Hins vegar er nær lagi að vörn sé besta sóknin.
Guðmundur veit einnig bara í einu af hverju 5 tilviki um hvað hann er að tala.
Það segir sig sjálft að ef að lið skorar fleiri mörk heldur en það fær á sig, þá sigrar það andstæðingin.
Mörk eru ekki skoruð þegar menn liggja í vörn.
Ég hélt að menn væru almennt meðvitaðir um þetta, þetta á nefnilega við um fleiri hluti en handbolta.
Ef þú ert í sókn allt lífið, þá stendur þú uppi sem sigurvegari. Ef þú hangir í vörn og gerir ekki neitt, þá mun líf þitt verða ömurlegt og þú tapar, á öllum sviðum.
Þessu til stuðnings get ég nefnt ótal dæmi.
sókn vinnur leiki, vörn vinnur titla.
þannig er það bara
Post a Comment