Það sem hefur verið að hrjá mig núna eftir áramót er fyrrverandi þjálfarinn okkar. Ég nennti ekki að fara út í Fram að skjóta út af því að þá kom feri og skipti sér að því. Hann vill stjórna öllum skrefum sem maður tekur á æfingu, ég nennti ekki að gera aukaæfingar með því líka.
Þetta fór gífurlega í taugarnar á mér í langan tíma, ég var bara farinn að springa reglulega úr pirringi sem er ekki líkt mér. Ég tjúnaði mig því niður, ég varð andlausari en ég er, fagnaði engu, hafði engann vilja þannig til að vinna fyrir þjálfarann. Ég varð líka andlausari bara til að vera ekki pirraður, ef mér er sama, þá hefur þetta ekki áhrif.
Ég spilaði samt meira núna í 3 umferð. en ég hef gert í vetur, meiðsl hjá byrjunarmönnum komu mér vel, spillega séð. Ég náði bara að nýta tækifærið vel. Sjálfum fannst mér ég ekkert spila neitt frábærlega en ég skoraði slatta, var frekar stöðugur í því. Skilaði mörgum mörkum, sem er þó eitthvað. Ég var valinn í úrvalslið umferðar 15-21 sem er viðurkenning á því.
Ég einhvern veginn reyni að hlusta á alla sem reyna að leiðbeina manni, en það eru alveg furðulega margir sem gera það. Sama hversu vitlausir menn eru, þá geta þeir sagt manni eitthvað sem nýtist allt að því ótrúlega vel. Feri má eiga það að hann er fínn einstaklingsþjálfari, ef ekki bara mjög góður, fyrir skyttu eins og mig. Hann er líka mjög góður í líkamlega þættinum. Ég tók fullt frá því sem hann hefur sagt.
Ég hef líka lært að halda mínu striki, ég var í nonstop hugarbaráttu vegna þessa þjálfara og bullshittinu sem hann var að segja okkur. Núna undanfarið hef ég bara náð að spila fínt og lifa æfingar af bara mjög vel, meðan að pirringur hefur vaxið hjá öðrum leikmönnum, það er ég ánægður með hjá sjálfum mér. Ég hef því náð að halda mínu striki, orðinn stöðugri í mínum undirbúningi fyrir leiki. Maður á alltaf að vera að bæta sig, þetta er held ég bara þáttur í því.
Nýr þjálfari nú í brúnni og allt annað andrúmsloft.
Þetta var þessi ástæða, ég get ekki haldið úti æfingadagbók ef ég æfi ekkert aukalega. Eins og ég segi verður sumarið meiri tími til að fylgjast með. Ég ætla mér að æfa fruntalega vel. Ég er núna kominn með prógrammið sem Guðjón Valur notaði frá Jón Arnari sem tröllreið öllu fyrir 2-3 árum. Það er komið í background á tölvunni minni og ég er ekki frá því að ég hlakki til að tímabilinu ljúki bara því ég hlakka svo til að byrja að lyfta.
Ég hvet ykkur til að kíkja hér inn reglulega en ekki á hverjum degi. Það er liðin tíð.
Tuesday, April 8, 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
0 comments:
Post a Comment