Það er fínt að fá smá reality check reglulega. Ég var úti um páskana með 88 liðinu, ég get ekki sagt að stjarna mín hafi skinið(er þetta rétt skrifað?) skært. Áttaði mig bara á því hvað ég á langt í land og hvað ég á mikið inni. Mér finnst ég eiginlega bara mjög slakur. Mér finnst ég eiga að geta verið yfirburðamaður en ég er ekkert nema bara sæmilegur og þessi hroki minn jafnvel ekki að gera nógu góða hluti.
Þannig að best er að rifja upp það sem Sókrates sagði: "ég er örlítið gáfaðari en allir í þorpinu útaf því að ég geri mér grein fyrir því að ég viti ekki neitt, þess vegna þykist ég ekki vita það sem ég ekki veit og veit því meira en hinir"
Æfingaálagið með landsliðinu fór ekki alveg nógu vel í mig, ég fékk í fyrsta sinn í öxlina á ferlinum og er að losna við það núna smátt og smátt. Líkami minn er orðinn eitthvað lúinn finnst mér enda hefur tímabilið mitt verið langt og strangt. Ekki nema einn og hálfur mánuður eftir. Eins og ég segi og þið hafið lesið þá er ég búinn að setja líkamann í mikið álag á þessu tímabili. Það hefur klárlega skilað sér enda hef ég náð að koma mér í gott form eftir meiðslin og risið úr því að eiga ekki að spila handbolta áfram og í það að vera valin í b-landslið.
Ég upplifi það þegar ég spila með jafnöldrum mínum að ég er á eftir þeim. Ég á meira inni en þeir og það er bara spilæfingin. Allir þessir strákar hafa verið að spila 2 leiki í viku síðast liðin 3 ár en ég ekki. Tvö tímabilin áður en ég meiddist spilaði ég bara með meistaraflokki, 20 mín í viku. Ég held því að þegar ég næ þessum strákum í spilæfingu þá verði ég töluvert sáttari með mig sem handboltamann. Það er líka allt að koma, enda hef ég spilað núna 6 leiki á síðustu 2 og hálfri viku.
Ég fór að lyfta áðan. Teygði líka smá, það þarf að sinna þessum vöðvum. Ég er þá kannski ekkert hættur, ég nenni samt ekki að gera þetta af einhverri skyldurækni, þið megið endilega kíkja á þetta væl samt í mér. Annars er það bara rúgbrauðið, fyrir fólk sem vill sjúga í sig menninguna.
Wednesday, March 26, 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
2 comments:
Gott að að sjá færslu sem byrjar á stórum staf. Smá grín. Góð færsla samt.
Leiðin á toppinn er hæg og erfið ganga upp bakhliðina á fjallinu. Sumir reyna að klifra bröttu hliðina en það gengur sjalda (aldrei?).
Post a Comment