Saturday, March 1, 2008

ég gæti svoleiðis komið með niðurgang úr kjaftinum á mér núna. Útskýrt tapið á ótal vegu, komið með skíta afsakanir. En það er bara glatað.

Valur vildi meira, einbeittari, grimmari, betra dagsform, betur undirbúnir og kannski ein afsökun, voru með tvo svarta hauka í horni í leiknum.

Manni langar nú mest af öllu að fremja sjálfsmorð núna, enda fátt meira niðurlægjandi eins og að tapa fyrir Val í bikarúrslitum, sérstaklega slæmt þegar þeir voru að rústa okkur. Við náðum þó að vakna, en alltof seint, hefði með smá heppni getað orðið einhver leikur, en það kom ekki.

Þessi vika hjá mér fyrir leikin var hræðileg, ég þarf núna að byrja að æfa aftur að krafti, eða skjóta á fullu og ná mér af þessum nárameiðslum. Koma síðan í góðu formi til þýskalands um páskana þar sem u-88 liðið mun spila undankeppni fyrir EM í sumar.

0 comments: