Friday, February 8, 2008

This is my shit!

Velkomnir góðir gestir, Atli Már hér öðru nafni Mosfellsmaðkurinn sem ég veit ekki hvort ég sé að fíla það vel sem gælunafn, en látum það liggja á milli hluta.
Eins og kannski flestir þeir sem hafa litið inná þessa síðu reglulega hafa gert sér grein fyrir hefur Ronnie Works tekið að sér hliðarverkefni sem snýst eingöngu og gjörsamlega í kringum mig, að þyngja mig og massa. Eins og það sé ekki nógu mikið challenge fyrir þá hafa markmiðin orðið stærri og orðin orðið fleiri (þá oft í samráði við Gunnar Harðarson, þann mikla meistara) og er markmiðið nú 80 kg fyrir næstu Skriðu, þ.e. næstu verslunarmannahelgi. Það þýðir á mannamáli, 14 kg á 8 mánuðum, cirka 1,75 kg á mánuði, takk fyrir mig. Rúnar hefur að vísu enga trú á þessu en það höfum við Gunnar enda draumóramenn eins og flestir meistarar. Eitthvað hefur líka verið rætt um að ég muni þá taka Þorstein Kára í bóndabeygju en ég efa að vísu að það gerist enda er smorrebröd og bjór ekki megrunarmatur hvað sem Þorsteinn segir.

Hér er mynd af mér síðustu verslunarmannahelgi:
Photobucket
(Já, ég er nakinn á þessari mynd, það henti enginn ninjastjörnu beint fyrir gæjann um leið og myndin var tekin. Ég er nýkominn úr sánu, með klút og sólgleraugu, svipuð aðstaða og ég verð í eftir 8 mánuði...)

Hér er svo mynd af mér með fíla g-streng sem ég á:
Photobucket
(Þess má geta að hér verður mynd af mér að 8 mánuðum komnum helrippuðum og svæsnum.)

Vá, ég man ekki hvað ég var að tala um það tók svo langan tíma að redda þessum myndum. Ég er byrjaður á Kolvetnisblönduðu kreatíni frá EAS og svo í dag tók ég einn skammt af Meal Replacement frá ToppFitt eða einhverjum djöflinum, íslenskt fyrirbæri, helvítis vindverkir sem fylgja núna.

Ég spurði mig áðan af hverju ég væri í raun að þessu, hvað væri það sem orsakaði það að ég leitaði í að breyta lífsháttum mínum svona svakalega. Af hverju væri ég ekki bara uppí rúmi að horfa á dvd. Þá leit ég í spegil og svarið það svoleiðis starði í augun á mér. Uuuusssssss!

Ég ætlaði að skrifa þessa færslu síðastliðinni miðvikudag enda hafði ég ætlað þá að hafa farið í ræktina mán, þrið og mið eftir stífu prógrammi Rúnkarans, hinsvegar vaknaði ég upp á miðvikudag með þennan þvílíka vírus í líkamanum og kastaði því upp, 10 sinnum, á 4 tímum cirka og lá síðan með 39 stiga hita það sem eftir var dags. Núna föstudag er ég nýkominn úr ræktinni þar sem ég tók skuggalega á því og er mjög þreyttur eftir, ég sagði reyndar við Rúnar að ég væri tæpur vegna þreytu en hann svaraði að maður yrði bara að vinna sig í gegnum hana, og vann ég svo sannarlega. Kom síðan heim og talaði við múttu, hún spurði af hverju ég hefði ekki hvílt mig. Ég svarai því um hæl: "því þeir sem hvíla sig ná engum árangri". Síðan stoppaði ég, leit í spegil og tjékkaði hvort þetta væri ekki í raun ég í speglinu, en ekki Susan Sarandon í myndinni "Freaky Friday" (http://www.imdb.com/title/tt0322330/)

Ég ætla ekki að hafa þetta lengra, ég hef þó meira til að fjalla um eins og crewið sem ég virðist vera kominn inní sem og 2 sætu stelpurnar sem ég sá í dag í ræktinni sem ég hafði ekki séð áður. Það var virkilega skemmtilegt enda hélt ég að ein þeirra væri að horfa á mig, en svo getur vel verið að hún hafi verið að horfa í spegilinn. Sem ég er byrjaður að gera meira og meira af. Svo líka um gæjana sem voru þarna um daginn sem fóru virkilega í taugarnar á mér. Þetta er allt umræðuefni morgundagsins. Eða einhvers annars dags.

"Til þess að fá salsa á maísinn, þá verður maður að rækta akurinn."

A-Town, úti.

2 comments:

GH said...

Þetta er ég eins ánægður með og ég verð. Ég vil fá fleiri pistla beint frá þér, beint frá hard-working almúganum óritskoðað. Menn geta líka gleymt því að tæp 2 kíló á mánuði séu e-ð rugl. Og þó Þorsteinn sé minn maður þá verð bara að segja að hann má fara að vara sig.

Sesar said...

Það er ekkert annað. Ég er ánægður með að þú hafir trú á þínum manni Gunnar. Hinsvegar er ég fullkomlega salírólegur þegar það kemur að einhverju bóndabeygjutali, enda var ég að koma úr hnefaleika-gymminu og það er einfaldlega svo skuggalegt að ég er ennþá að jafna mig. Það er bókstaflega hættulegt að koma með verðmæti þarna inn. Skrattans þjálfarinn (Ricard Olsen) er líka einn harðasti andskoti sem að ég hef hitt. Hann þjálfaði til að mynda Mikkel Kessler og er pabbi Frank Olson, sem að var heimsmeistari í veltivigt. Maðurinn er fullkomlega óviðræðuhæfur vegna þess hversu harður hann er.

Tékkið bara á þessum linkum:
http://www.teamcopenhagen.dk/Default.aspx?ID=1182&Printerfriendly=1

http://www.scandinavian-boxing-rankings.dk/scandinavian-records/frank-olsen.htm

http://www.cik-boksning.dk/images/a.jpg

http://www.boxrec.com/list_bouts.php?human_id=016951&cat=boxer