Jæja, þar sem Rúnki er að skíta á sig í boltanum og nú farinn til Rúmeníu þar sem er örugglega ekkert netsamband þá hef ég ákveðið að þrusa annari færslu hingað inn.
Þeir sem hafa komið í Lágafellslaug sem er uppí Mosfellsbæ vita að sturturnar þar eru sjálfstýrðar þ.e. þær bara hætta að sprauta eftir svona 2 mín sem er auðvitað, virkilega pirrandi. Ég hef verið að kanna þessa stöðu undanfarið og áttað mig á eftirfarandi stöðu: 2 sturtur í gangi = temmilega heitt, 3 sturtur = vel heitt og fjórar sturtur eru síðan frekar mikill sekkur. Ég hef enn ekki farið í það að virkja 5 sturtur í einu þar sem að til þess þarf frekar mikla hreyfingu og vinnusemi af minni hálfu sem ég nenni ekki eftir æfingar en út frá fyrri reikningum sé ég bara tvennt sem getur komið út úr þessu annað hvort a) funandi hiti sem væri fínt eða b) ennþá meiri sekkur sem er ömurlegt. Þeir sem lesa þetta og ákveða að skella sér í laugina mega halda áfram rannsóknum mínum sem ég bendi á að eru enganveginn vísindalegar á nokkurnhátt og í raun hafa hvorki viðmið eða skjöl til staðfestinga.
Svo er líka bara alltaf hægt að fara í hinn sturtuklefann þar sem eru 2 sturtur sem hægt er að stilla sjálfur bæði hita og kraft.
Ég var búinn að lofa að tala um crewið sem ég væri kominn inní en svo virðist sem það hafi flosnað uppúr því um leið og ég hélt að þetta væri allt að detta í gang. Tveir virðast vera hættir að mæta og svo er ég að kynnast hinum og þeir virðast vera temmilega leiðinlegir. Það eru þó nokkrir sem vekja áhuga minn. Fyrsta ber að nefna gæja sem koma alltaf tveir saman (þó annar sé að vísu byrjaður að mæta mun minna en mér heyrist það á hinum gæjanum að hann sé nýbúinn að eignast barn, sem er þá skiljanlegt) en þessir tveir eru greinlega tölvunjörðar (er það nörðar eða njörðar, ég mun nota njörðar í þessari færslu) og kýs ég að kalla þá MassaNjörðana hér eftir. Þeir vinna greinilega hjá einhverjum tölvufyrirtækjum og eru í raun ávallt annaðhvort að tala um einhverjar tengingar og móðurborð eða þá einhvern leik og að því er virðist og eftir minni bestu vitneskju virðist þetta vera leikurinn World of WarCraft eða WOW. Þeir eru held ég mjööög harðir WoW spilarar, sem kemur já, gríðarlega á óvart. Samt ekki þar sem ég þekki annan pínu og hann hefur alltaf átt þetta til en samt, fyrir hið óþjálfaða auga er þetta mjög mikið upset.
Annar sem ég ætla að tala um er RemaxMaðurinn. Þessi gæji er víst yfirmaður einhverjar ReMax sölu og er virkilega mikill pakkakassi. Hann hinsvegar heldur að hann sé það heitasta á markaðnum síðan djúpsteiktur kjúklingur varð til. Hann og einn þjálfarinn í ræktinni eru einhverjir kumpánar og teymi sem sífellt eru með groddastæla í ræktinni, þó aðallega ReMaxMaðurinn sem er bara eitthvað undarlegasta fyrirbæri sem ég hef kynnst. Ég hélt að hann væri góður á því en svo reyndi ég eitthvað að spjalla við hann í sturtunni og hann eiginlega talaði við mig eins og ég væri einhver kjúklingur, og ekki djúpsteiktur, heldur bara, hrár. Eftir það hefur mér líkað illa við hann. En svo áðan, þá byrjaði hann að peppa, ég var að taka armbeygjur og var alveg búinn á því, gat varla meira, þá stillir þetta kvikindi sér upp við hausinn á mér og byrjar að segja: "5 í viðbót!" og ég bara, fokk, byrjaði að taka 5 í viðbót en komst bara uppí 4 með gríðarlegum erfileikum vegna þess að ég var búinn að taka virkilega grimmilega á því. Ég dett niðrí jörðina af máttleysi og þá segir vinur minn "jæja, þú tekur þá 3 í viðbót núna fyrst þú gafst upp". Djöfulsins hálfviti. Síðan er þessi gæji að væla eins og einhver drullupollur yfir einhverju sem hann þarf að gera. Sá hann líka um daginn, þegar einhver var að segja við þjálfara að skáhallandi bekkurinn sem er nýkominn hafi fokkað honum eitthvað upp, segir ekki minn maður "þú verður náttúrulega að kunna almennilega á þetta maður" og ég segji það og skrifa, ég hef aldrei, -nokkurtíman- séð ReMaxManninn fara í þennan bekk. Og þessi sem hann fleygði þessum orðum í var mjög stæltur og leit alls ekki út fyrir að vera að þessu í fyrsta skipti.
Ég ætlaði líka að tala um sætu stelpurnar sem ég sá um daginn en þær hafa ekkert komið aftur og ég hef í raun misst áhuga á þeim. Sérstaklega þar sem ég er orðinn mjög hrifinn af sjálfum mér. Meira en venjulega.
Einnig vil ég benda meistaralesendum á commentið sem Gunnar Skúlason kom með hérna fyrir neðan, það er pjúra snilld og ætti maðurinn að vinna í líkamsræktargeiranum, það er alveg fullljóst.
RXB kveður stinnur sem leður.
Friday, February 15, 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
9 comments:
ég sé mig tilneyddan til að qoute-a í gillz...
þegar við erum í ræktinni þá erum við ekkert að spjalla eins og rjómar, við tökum bara hroðalega á því
sko atli, þetta á að heita æfingadagbók og þú ert bara vælandi hérna um einhverja pappapésa og blöðrukisur í þessari rækt. Pappíraðu þig og lýstu pumpinu eða að ég breyti lykilorðinu!!!
Ég er bara að reyna að peppa þetta upp eftir einhverjar slöppustu færslur síðari ára hérna á undan. Fólk hefur kannski gaman af því að lesa um eitthvað annað í smástund en kílófjölda og sett, fjárinn hafi það. Menn upplifa ræktina mismunandi og taktu þig svo saman í andlitinu í boltanum áður en þú ferð að dæma pistla eins og þér sé borgað fyrir það.
Geeez!
Rúnar fær tæran mínus fyrir að skíta á sig í þessu komenti. Menn eru að leggja sig virkilega fram á flestum vígstöðvum hérna og fá síðan einhverja illa bakaða og illa séða kommentapulsu í rassgatið.
Hysjaðu upp um þig buxurnar gamla grýta og lærðu að meta fallega hluti í lífinu.
Sammála brósa. Lífið snýst um fleira en stálið.
niggas, sjarrabb!!!
gamla grýtan? djöfuls skíta nafn, helv. danska daðlan þín....
lífi snýst um stálið og ekkert annað og sérstaklega þetta blogg. Ef þið rjómavöfflurnar viljið ræða um eitthvað annað eða blogga um annað, þá getið þið byrjað að blogcentrala yfir ykkur.
ég stend ekki í einhverju rugli við ykkur....
takiði á því!
Ég hef hér með sagt skilið við Ronnie Works.
Ég líka, stofnum okkar eigin æfingablogg sem verður allavegana með einhvern snefil af eitthverju öðru en hreinni skitu og leiðindum!
Mér þykir það til háborinnar skammar hversu mikið Gillzi-Rúnar er búinn að vera að tjá sig mikið hérna, það er maður sem að ég vill ekki þekkja. Hann er hadló(?).
Rúnar, þetta blogg er búið að vera á síðustu dropunum í langan tíma, en núna fórstu yfir strikið. Dagar mínir sem stuðningsmaður þess eru liðnir.
Til hamingju.
andskotinn sjálfur.
atli íslenska-ameríska var að hringja Always dömubindin þín eru komin!
Atli þessi færsla var alveg ágæt, en bara langt fra því sem þetta hliðarverkefni stendur fyrir. Allavega í mínum augum.
tökum á því, segjum frá því.. alla leið!!!
Ég get ekki betur séð en að færslan hans Rúnars hér fyrir ofan komi átökum ekkert við eða annarri líkamsrækt. Hún fjallar raunar bara um að Rúnar neiti að fara að skipunum þjálfara síns (sem er nákvmæmlega það sem hann sakar Atla um hér í kommentinu fyrir ofan)og almennan tölvunöllaskap.
Rúnar, þér ferst að tala!
Post a Comment