Friday, February 1, 2008

Muscle Armor

Umræðurnar í síðustu færslu voru einstaklega ánægjulegar. Atli Már er nú farinn að spá mikið í kreatíni sem viðbót í átakið sitt, eftir að Steini ögraði honum alla leið. Mosfellsmaðkurinn lætur ekki bjóða sér það.

Vill benda á að fyrstu línurnar hér að ofan voru skrifaðar snemma í dag og margt búið að gerast síðan. Við fórum og keyptum kreatín á maðkinn. Hann gat ekki labbað eftir work outið áðan og er ekki hægt a segja annað en að með þessu áframhaldi og metnaði í maðkinum verði hann tuddalegur.

Ég splæsti líka í nýrri týpu og er hún rándýr, 8000 kall á einhverju rugl tilboði samkvæmt síðu eas liða. Muscle Armor heita gæðin og hef ég tröllatrú á þessu. Þetta er þar að auki þrælgott á bragðið og mjög svalandi eftir æfingar.

http://www.eas.is/?item=41&v=item

Fyrsti leikur á morgun eftir pásu, West man Islands döpur staðreynd, ég hreinlega hata place-ið og geri það sterkar eftir að steypugólfið þar braut á mér olnbogan í fyrsta leik í haust. Það verða hlífar fyrir allan peningin á morgun. Svo margar að Gummi Gumm hefði skammast sín back in 83'.

stefnan er síðan sett á ómannlegar æfingar í næstu viku, kominn tími á eitthvað rugl. Varnarvinnan og skot tekin fyrir ásamt þessu almennu lyftingum. Þreyta er hugtak sem við höfnum hér á Ronnie works

2 comments:

Guðmundur Kristján said...

Ég sé að þú hefur uppi svipaðan hugsunargang og ég og Jón Ben höfðum uppi á Kaffibarnum fyrir fyrir 10 mín síðan. það kostaði okkur stórfé.

Senjor Steinsson. said...

Óskiljanlegt komment hjá gumma, hann sver sig greinilega í ættina.

Mér er bara temmilega illt í flestum vöðvum líkamans. Helvíti skemmtilegt.