Atli Már, það er klassa samband hér í lobbýinu á Hotel Timosuara.
Þjálfarinn okkar er strangur djöfull og kontról frík. Við máttum ekki fara útaf hótelinu í dag því hann vildi að við hvíldum okkur. Hressandi það. Rebelinn ég og óþreyttur, nennti ekki að hanga í lobbýinu þannig að ég fór upp á herbergi og lærði með fikti á imovie klippiforritið í tölvunni minni. Niðurstaðan varð þrusumetnaðarfullt myndband af mörkum mínum í seinni hálfleik við Val í vodafone höllinni.
smá kjánahrollur, jafnvel alla leið en þetta vekur upp góðar minningar fyrir menn eins og Atla Má og Jón Ben. Ég held samt að menn geti verið sammála í því að ég fari í klippibransann gangi handboltaferill minn ekki upp.
ps. vill taka það fram ef myndbandið er ekki komið inn þá er þa útaf netfokki hér, einstaklega hægt samband. Það fer þá inn bara við fyrsta tækifæir heima
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
5 comments:
Þetta lag maður. Minnir mig ekkert lítið á Viktor Hrafn.
hahaha, þetta finnst mér fyndið, skemmtilegt og hressandi allt í einu.
svo er lagið náttúrulega hrein snilld.
ég vil samt fá að heyra hvað meistari adolf er að segja um kappan ég var náttúrulega upptekinn uppí stúku við að henda hlutum inná völlinn..
Þetta blogg verður bara betra og betra. Þetta er að verða musteri Rúnars Kárasonar.
Yndislegt, ég get ekkert annað sagt.
Það er æfingamyndband í þessum gæðum sem að ég vill.
Snilld.. : )
Post a Comment