
Það er búið að vera mikið af leiðinlegum færslum í gangi hjá mér, engar myndir og ég veit ekki hvað.
Maðurinn hér að ofan er fyrir þá sem ekki vita Gilberto Arenas. Hann er einhver mesta stjarnan í NBA um þessar mundir. Hann heldur úti bloggi á NBA.com sem er virkilega skemmtilegt á stundum. Arenas er þekktastur fyrir að vera uppátækjasamur og er alltaf eitthvað að kynda í mannskapnum hvort sem það eru fans eða leikmenn.
Hann kom inní deildina og gat ekki rassgat, var afskrifaður og eitthvað. Hann sætti sig einfaldlega ekki við það og byrjaði að æfa eins og rotta. Hann var líklega einn af betri mönnum deildarinnar í fyrra og var það hans þrotlausa vinna sem skilaði því. Hann er þessi hvunndagshetja og ameríkaninn elskar hann því að hann sýnir meðalmanninum að allt sé hægt. Svona eins og kanar elska hafnabolta, því að hvað dólgur og fyllibytta sem er getur orðið góður í honum.
Ég rakst á myndina hér að ofan á nba síðu sports illustrated sem er með best dressed nba player skoðanakönnun í gangi. Dwayne Wade er að vinna sem er óskiljanlegt. Enda Agent Zero(arenas) ómannlega svalur í þessu átfitti.
Þetta er skoðanakönnunin, þarna er hægt að sjá þessa helstu á rauða dreglinum, mjög smooth flestir.
http://sportsillustrated.cnn.com/multimedia/photo_gallery/0711/best.dressed.nba/content.4.html
Hér er grein um Gil Zero á wikipedia, Gilbertolofy, það er ótrúlega fyndið. Hibachi.http://en.wikipedia.org/wiki/Gilbert_Arenas#.22Gilbertology.22
Hér er svo bloggið hans á nba.com
http://my.nba.com/forum.jspa?forumID=400032200
ps. Arenas er aðalnúmerið hjá Adidas í körfuboltanum