Okei, alltaf jafn ömurlegt að tapa. Að tapa fyrir Val á heimavelli, er hugsanlegt svekkur ársins.
Sóknarlega var ég mjög slakur, alltof slakur, skotin mín voru fáranlega léleg, en ég náði þó að skora tvisvar úr gegnumbroti. Frekar sáttur bara með að ná að spila minn fyrsta leik í Framhöllinni í tæpt ár og fínt að innsigla það með 2 mörkum. Það eru þessir litlu sigrar í lífinu sem skipta sköpum. Ég spilaði líka framúrskarandi varnaleik að mínum dómi, sérstaklega í seinni hálfleik. Það er þó jákvætt.
Ég hef ákveðið að kenna meiðslunum um slök skot. Ég þarf að ná upp fyrra skot formi, detta á nokkrar skotæfingar núna á næstunni. Einnig var teipingin ekki nógu góð, ég fann ekki fyrir hendinni og var máttlaus í framhandlegg. Það gengur ekki.
Nóg af afsökunum, ég fer bara í gymmið og svara síðan fyrir þetta á vellinum
Tuesday, October 30, 2007
Monday, October 29, 2007
Grin?
Jóhann Gunnar landsliðsmaður með meiru sagði að menn kæmu iðulega að sér og spyrðu hvort ég væri að grínast með þessa síðu. Ég er ekki að grínast. Að vísu var pistillinn um stökkkraftinn, með þremur myndböndunum algert grín. Ég er náttla aldrei að fara að ná þessu og er ekkert að reyna það neitt sérstaklega. Enda er ég ekki blökkumaður, sem útilokar þetta algerlega. White men can't jump. Þó svo að heimsmethafinn í hástökki sé eins mikill aríi og þeir gerast.
En eins og ég sagði í sama pistli, þá eyði ég stundum heilum kvöldum í að skoða youtube, æfingamyndbönd og lesa greinar um hvernig þessar stjörnur sem við þekkjum æfum. Það er einfaldlega út af því að mig langar að vera jafngóður í því sem ég geri og þeir eru í því sem þeir gera.
Mér finnst pælingin vera geðveik, að sjá myndband af því þegar þessir pró gæjar taka eitthvað sjúkt prógramm eitthvað sumarið til þess að brillera. Svona svipað og Guðjón Valur gerði með Jóni Arnari Magnússyni, nema að það var ekkert myndband. Jón Arnar uppskar bara miklar annir og öll íþróttalið á landinu sóttu eftir aðstoð hans.
Þannig að pælingin mín er sú. Ef ég verð þá einhvern tímann, einn af strákunum okkar og kemst að í góðu liði í Evrópu, eða þá bara á þann standard að maður detti í fréttirnar nái maður að skora í einhverjum leik. Þá er ég að bjóða upp á það að þið getið fylgst með mér láta það verða að veruleika.

Sunday, October 28, 2007
Fram vs. Valur
Meiðslin eru þá loksins að lægja, ég er byrjaður að taka þátt í handboltaæfingum á fullu og hendin er að halda vel. Gefum þessu 91 prósent (=heill). Svo maður fær loks að spila handbolta á nýjan leik. Við erum að tala um að ég spilaði síðasta leik fyrir jólin seinustu, 17. des. og svo spilaði ég svona eins og 10 æfingaleika á undirbúningstímabilinu, fyrsta leikinn í deildinni og hér erum við stödd. meira en 3/4 af árinu liðnir og ég búinn að spila 1 deildarleik. Meiri háttar alveg.
En nóg er komið af væli.
Fram-Valur er á þriðjudaginn og er það stórt batterí. Þótt þetta sé ekki toppslagur, þar sem að Valsarar hafa ekki farið mikinn það sem af er vetri, þá eru þessar viðureignir alltaf hörkuspenna og miklir hagsmunir í húfi. Stigataflan hefur ekkert að segja. Dagsformið hefur hins vega allt að segja. Við erum búnir að vera óheppnir með meiðsli undanfarið og lýtur út fyri að 2 af okkur sterkustu mönnum það sem af er vetrar verði ekki með á þrillann.
Tveir af mínum betri vinum spila með Val, Gunnar Harðarson og Sigfús Páll og munu þeir ekki fá neitt gefins í FRAMhöllinni. Það er klárt.
Nú er það bara að koma fallbyssunni í sitt fyrra form fyrir þriðjudaginn, þá ætti þetta að vera save.

Wednesday, October 24, 2007
Competition
Lítið hefur á daga mína drifið, ég er latur andskoti þessa daganna, sem er svo sem skiljanlegt. Þreytandi þetta meiðsla vesen. Ég byrjaði samt að kasta bolta í fyrra dag og svo aftur í gær, það gekk bara vel og ég er verkjalaus. Ég þurfti sem sagt að beila á dk ferð með u-88 en strákarnir stóðu sig samt ágætlega þrátt fyrir 2 töp. Enda Danir núverandi heimsmeistarar í þessum aldursflokki.
Lesa má aðeins um leikina á heimasíðu Anton Rúnarssonar, Valsara, Unglingalandsliðsmanni og syni mínum. www.antonrunars.bloggar.is
Anton byrjaði með síðuna sína nýlega og hefur hann gefið það út að hann sé í keppni við mig og ætla að rústa mér. Hann er náttla ekki að vinna með sama konsept en engu að síður alltaf gaman af mönnum sem tala með rassgatinu.
Mér finnst þetta minna svo lítið á þegar Charles Barkley komst í finals á móti Bulls og byrjaði að tala um að Guð hafði talað við sig og vilja að hann ynni.
Jordan og hans óstöðvandi Bulls, völtuðu frekar léttilega yfir CB og félaga í Suns.
Þar hefuru það Anton.
FRAM vs. Valur næsta þriðjudag, í FRAMhöllinni. Allir eiga að mæta, það verður leikur ársins hingað til.

Wednesday, October 17, 2007
Frekar súr dagur. Komst að því áðan eftir að sjúkraþjálfarinn minn talaði við lækni að ég má ekki fara með unglingalandsliðinu til DK á laugardaginn. Helvíti svekkjandi alveg hreint og dagurinn farinn í vaskinn, nennti voða lítið að gera á æfingu, þannig að ég hjólaði í 25 mín og fór síðan í skotkeppni með mfl kvk. Ég leiddi þá keppni um tíma en tapaði loks fyrir Pövlu, sem er atvinnumaður. Þess má til gamans geta að ég notaði hægri en er örvhentur eins og flestir vita.
Ef við förum í aðra sálma þá er helvít skemmtilega frétt á mbl.is. Þar segir frá Antoine Walker úr Miami Heat sem er of þungur og var settur í straff. Hann stenst ekki kröfur Miami Heat um 7 prósent fituhlutfall og fær því skertann spiltíma að launum. Dreng var með 15 prósent þegar hann mætti til leiks eftir sumarfrí og var meistar Pat Riley ekki sáttur með það. Ég er með svona á bilinu 10-14% og þori ég að fullyrða að það sé töluvert fáir handboltamenn á íslandi sem myndu standast þessar kröfur Miami.
http://www.mbl.is/mm/sport/frett.html?nid=1297078
þarna er fréttin

Monday, October 15, 2007
Rugl
Ég er íþróttanörd, algert, ég semi nærist á íþróttum. Ég eyði stundum heilum kvöldum í að skoða íþróttamyndbönd á youtube, lesa greinar um íþróttamenn á wikipedia eða annars staðar. Það er heldur ekkert leyndarmál að mig langar að ná mjög langt í minni íþrótt. Bæði sem einstaklingur og sem hluti af góðu liði.
Sumir framúrskarandi íþróttamenn gera stundum hluti sem fær mig alla vega til að efast um það hvort þeir séu einfaldlega mennskir. Maður vill líka fylgjast með þessum gæjum eins og t.d. Kobe Bryant og Lebron James, ekki út af því að þeir séu að skaffa skemmtun allan leiktíman, fokk it, stundum öskrar maður afhverju í fjandanum sendiru boltan ekki? En málið er að maður horfir á þessa gæja því stundum gera þeir hluti sem eru hreinlega algert rugl, hluti sem á ekki að vera hægt að gera. Mig langar að geta gert svoleiðis hluti.
Þetta er street ball spilari sem kallar sig "Air up there" hann hoppar eins og sést í myndbandinu í tvo hringi áður en hann stöffar boltanum.
Sorry með mig en ég elska showtime, flott tilþrif gera leikinn betri, eitthvað sem fólk talar um...
Hérna má sjá Michael Jordan troða frá vítalínunni í körfubolta, það er rugl
Ég veit að þegar ég sé einhvern gera eitthvað flott þá tala ég um það og reyni jafnvel að herma eftir því, fokk, ég var byrjaður að reyna snúa boltann þegar ég var í 6. flokki því að ég sá það í sjónvarpinu og fannst það svo töff. Í seinni tíð eru það undirhandarskot, eða þegar einhver fíflar markmann í ruglið og sendir hann yfir hausinn á honum. Showtime-ið er líka skilaboð, maður er að segja "ég er svo góður að ég get verið í svona rugli, þú átt ekki séns!". Núna er ég farinn að halla mér frá tækni undrunum og yfir í líkamsyfirburðina, eins og þessi myndbönd að ofan sýna...
Þetta er Vince Carter, hann er að hoppa yfir 7 feta mann og stöffar honum síðan ég held að fetið sé 30 cm þá er maðurinn hið minnsta 210 cm, takið eftir því þegar Carter er að fagna og er næstum því búinn að klokka KG útúr húsinu í æsingnum.
Það sem ég er að segja er, að það væri einfaldlega ruuusalegt!!! ruuusalegt segi ég, ef ég myndi ná að fara í hraðaupphlaup einhvern daginn og hoppa í tvo hringi áður en ég myndi senda boltann í markið...
..eða ef ég myndi hoppa inn í markið, sem myndi einfaldlega vera markmanninum ofviða...
..eða ef ég myndi einhvern tíman vera mættur í seinni bylgjuna og ákveða bara að lyfta mér upp á þriðju hæð, hoppa yfir varnarmanninn áður en ég hamra honum, ég endurtek, HAMRA HONUM í markið.
Ég segi það vanti svona showtime í boltann. Ef það væru svona tilþrif í íslenska handboltanum, þá væri fólk að tala um boltann og myndi mæta. Það er enginn að segja mér að það væri toppmæting í NBA deildina ef það væru ekki tilþrif.

Saturday, October 13, 2007
leti
já áætlanir dagsins fóru heldur betur fyrir bí. Ég fór út í fram og ætlaði í rudda session en það endaði skyndilega eftir 18 mínútna skokk. Ég var ekki með ipod og ég nennti þessu engann veginn.
þá á maður bara að sleppa þessu, annars fær maður bara ógeð.
Veit ekki hvernig ég verð um helgina, ég spila það eftir eyranu.

Friday, October 12, 2007
2 a days
Tvær æfingar í dag, frekar léttar báðar, var svolítið að einblína á brennsluna eftir kannski meira sprengju síðustu 3 æfingar á undan.
Ég fór í hádeginu út á Framgras, grasið sem gerir fótboltamenn lélega og skokkaði þar í 30 mín. Það var æfing eitt.
Fór síðan áðan í Framhöllina þar sem ég tók varnaræfingar í 30 mín, datt í maga og bak og svo 5 létta spretti.
Eins og ég sagði frekar létt allt saman en það er líka partur af þessu. Ætla að detta í gott session á morgun veit ekki hvort ég taki 2 æfingar eða hvort ég skelli þessu í eina langa, það verður geðþótta ákvörðun.
Skelli síðan einni mynd af mér í broddi fylkingar í Avon göngunni í New York, á kassanum að sjálfsögðu

Thursday, October 11, 2007
Yeah
það er eitthvað svo yndislegt við það að vera með harðsperrur. Líkaminn hreinlega að láta mann vita af því að hann sé að bæta sig.
Ég tók æfingu tvö, mætti 1830 í Framhöllina, og hitaði mig upp, tók síðan hopp session, var að sjálfsögðu með ökklalóðin.
byrjaði á nettu upphitunar, hopp jafnfætis yfir grindur, 4 umferðir, hæðin á grindunum svona 60 cm, fjöldi þeirra 7.
svo hoppaði ég á öðrum fæti, tvær umferðir á hvorn fót.
Eftir það sneri ég grindunum upp á rönd, sem gerir þær svona 110 cm háar, fjórar talsins, tók 4 umferðir með lóðin og svo 3 án þeirra. Þetta var eitthver ruddalegustu hopp sem ég hef tekið.
Eftir það lækkaði ég grindurnar niður í svona 50 cm, fjölgaði þeim í 6. Núna hoppaði ég jafnfætis, lenti á öðrum fætinum og náði jafnvægi á honum áður en ég hoppaði síðan aftur jafnfætis. Ég tók 4 umferðir á hvorn fót af þessu.
þá var minni einstaklingsþjálfun lokið, ég tók síðan þátt í upphitun með strákunum, svona til að svitna aðeins. Skaut með hægri, stóð ekki alveg undir væntingum, en klárlega potential jafnhendi á ferðinni.

two-a-days
Já þá er maður kominn á flug eftir ánægjulega og jafnframt æfingalausa viku í New York. New York var sólrík og góð. Ég labbaði heilan helling þar, bæði milli búða og síðan einnig labbaði ég seinasta áfangann í AVON göngunni með mömmu og co fyrri daginn, eða yfir George Washington brú og langa leið inn í Jersey eða einhverja 6 kílómetra.
Það var síðan æfing í gær, var bara nokkuð rólegt enda ekki gott að fara of fljótt af stað. Ég skokkaði í 25 mín í upphitun og gerði síðan smá hopp æfingu og fótavinnu.
ég fór síðan áðan í framhöllina, er meira segja nýkominn þaðan, skokkaði í 5 mín í upphitun og tók síðan smá sprett/fótavinnuæfingu, svona rétt til upphitunar. Eftir það skellti ég mér inni í lyftingarsal, þar sem ég ætlaði að vera í 30 mín á "the stairmaster" en sökum lélegra gæða í 15 ára gamalli vélinni sem olli miklum erfiðleikum þá lét ég einhverjar 8 mínútur duga. Þess má til gamans geta að ég svitnaði svona sirka bát 2 lítrum á þessum 8 mínútum og ég verð hreinlega að spyrja Karl Malone hvernig hann þraukaði í klukkutíma á "the stairmaster". Ég ákvað þess vegna að detta aðeins á æfingahjólið sem er ekkert nema gæðin í gegn, þar hjólaði ég í 20 mín meðan ég byrjaði á myndinni Eurotrip (Ipod Video, klassi), ég reikna ekki með að klára hana.
Þegar því var lokið var ég búinn að svitna vel og því lítið annað að gera en að teygja, detta í smá maga og sipp.
Ég stefni síðan að því að fara aftur í kvöld eða klukkan 6. Þá ætla ég að hjóla í 25-30 mín, sippa síðan og taka nett hopp session yfir grindur. Að því loknu ætla ég að hita upp með Framliðinu sem mætir Aftureldingu. Ég hvet fólk til að mæta á leikinn og mæta snemma, því ég mun þá sýna fádæma náttúruhæfileika með hægri hendi, sem vinstri hornamaður.
Frábært að vera dottinn í two-a-days aftur.
Nú er maður að reyna að koma sér í hasarform, því að stefnt er að þvi að vera klár í slaginn laugardaginn 20. okt þegar u-88 landsliðið fer til DK að spila tvo æfingaleiki.

Tuesday, October 2, 2007
Ég tók gott session í gær, skokkaði í 25 mín í upphitun,
tók 2 sett með 10 reps í hopp yfir grind, sem var svona 110 cm á hæð, með ökklalóðin
næsta æfing var síðan þannig að ég hopp niður af bekk, svo beint í hopp eins langt og ég get, 2x10 og svona 2x5 í í sömu æfingu nema hopp til hliðana ská áfram.
Síðan fórum ég og Brjánn í smá spretti, 3 sett.
Byrjuðum á endalínu, sprettur að miðju og tilbaka, svo fór brjánn, hvíla meðan hinn hljóp. Þrí sprettir þrisvar.
Ég var að sjálfsögðu með ökklalóðin.
Núna er ég að detta á æfingu, mína síðustu fyrir viku frí í NY en ég ætla nú að reyna að detta í gymmið þarna úti.

Subscribe to:
Posts (Atom)